Í þróun
Golfhópar.is verður einföld lausn fyrir alla kylfinga.
Við viljum þróa lausnina hér á Íslandi, með íslenskum golfhópum og kylfingum. Hugmyndin er að byggja kerfi sem nýtist íslensku golfsamfélagi vel og mótast af raunverulegum þörfum þeirra sem nota það.
Íslenskir kylfingar og golfhópar fá að nota Golfhópar.is án endurgjalds. Ef lausnin virkar vel hér heima er stefnan að taka hana áfram út fyrir landsteinana.
Hvað vantar? Hvað er vesen? Hvað myndi gera skipulagið einfaldara?